08.09.2023
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir Jöfnunarstyrk þann 1. september n.k. vegna námsársins 2023-2024.
06.09.2023
Símkerfi skólans liggur niður vegna bilunar. Unnið er að viðgerðum. Minnum á tölvupóstinn msund@msund.is.
29.08.2023
Tveir fyrrverandi nemendur Menntaskólans við Sund fengu í ár styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.
Lesa meira...
23.08.2023
Stundatöflur haustannar tilbúnar, opið fyrir beiðnir um töflubreytingar.
Lesa meira...
22.08.2023
Móttaka nýrra nemenda við skólann verður í Holti, matsal skólans, fimmtudaginn 24. ágúst kl. 14:00. Nemendur á starfsbraut mæta kl. 13:30.
Lesa meira...
13.08.2023
Skólinn verður lokaður mánudaginn 14. ágúst og miðvikudaginn 16. ágúst vegna framkvæmda. Skrifstofa svarar þó síma og tölvupóstum þessa daga.
10.08.2023
Opnað verður fyrir umsóknir nýnema og eldri nemenda í Menntagátt þann 11. ágúst og er opið til 17. ágúst. Umsóknum verður svarað í kjölfarið.
Fyllt verður upp í örfá laus pláss sem myndast í skólanum í ágúst en ekki er ljóst enn hve mörg plássin verða né á hvaða brautum / námsárum. Engir eldri nemendur verða þó teknir inn á náttúrufræðibrautir að þessu sinni.
21.06.2023
Samkvæmt fyrirmælum Menntamálstofnunnar verður umsækjendum um skólavist sem voru að ljúka 10. bekk svarað þann 23. júní.
14.06.2023
Innritun eldri nemenda á haustönn 2023 er nú lokið. Tekið var inn eftir loknum einingafjölda umsækjenda og plássi á brautum og námslínum, að því gefnu að einingar pössuðu inn á námsbrautir skólans. Allar umsóknir hafa verið afgreiddar í Innu/Menntagátt og sjá umsækjendur stöðu umsókna þar.
Ef færi gefst verður opnað aftur fyrir umsóknir á haustönn í ágúst og verður það þá auglýst þegar nær dregur.
07.06.2023
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 28. júní til og með 8. ágúst 2023. Skrifstofan opnar aftur klukkan 10:00 miðvikudaginn 9. ágúst 2023.