Innritun eldri nemenda á haustönn 2023 lokið

Innritun eldri nemenda á haustönn 2023 er nú lokið. Tekið var inn eftir loknum einingafjölda umsækjenda og plássi á brautum og námslínum, að því gefnu að einingar pössuðu inn á námsbrautir skólans. Allar umsóknir hafa verið afgreiddar í Innu/Menntagátt og sjá umsækjendur stöðu umsókna þar.

Ef færi gefst verður opnað aftur fyrir umsóknir á haustönn í ágúst og verður það þá auglýst þegar nær dregur.