FATA3FF05 - Fatagerð og fatahönnun
Í áfanganum læra nemendur meiri tækni og dýpt í fatagerð og fatahönnun. Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í meiri sníðagerð og saumaskap við að þróa færni í að framkvæma hugmyndir sínar og að efla sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur læra að rykkja, fella og brjóta efni, þrykkja og gera prufur til að þróa enn frekar hugmyndir sínar í fatahönnun og saumaskap. Nemendur hanna yfirhöfn sem lokaverkefni. Nemendur gera ferilbók og fara í vettvangsferð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugmyndaöflun og tækni í fatahönnun og fatagerð
- sníðagerð, efnisþörf, textíl- og saumtækni
- vönduðum vinnubrögðum
- mismunandi eiginleikum textílefna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hanna flíkur og nytjahluti
- taka líkamsmál og teikna flóknari snið
- nýta sér möguleika saumavéla og saumtækni
- nýta sér möguleika í notkun og endurvinnslu textílefna
- temja sér vönduð vinnubrögð við alla þætti vinnunnar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leita hugmynda
- teikna hugmyndir sínar og útskýra
- kunna að útfæra og framkvæma hugmyndir sínar í saumaskap
- þekkja möguleika í endurvinnslu og umhvefisvitund á textílefnum