FÉLA3AF05 - Afbrotafræði

Afbrotafræði er framhaldsáfangi í félagsfræði þar sem lögð er áhersla á að beita kenningum og rannsóknaraðferðum með það að markmiði að auka þekkingu nemenda á afbrotafræði sem fræðigrein. Nemendur öðlast færni í að beita helstu hugtökum afbrotafræðinnar, vinna með áhrif frávika á samfélagið, og skilgreiningu og flokkun afbrota. Einnig er leitast við að nemendur þekki samhengi menningar og afbrota. Mikilvægt er að nemendur geti greint hið félagslega ferli er liggur að baki hegðun afbrotamanna. Þannig er lögð áhersla á að nemandinn geti fjallað um frávik og afbrot út frá félagsfræðilegu sjónarhorni, beitt félagsfræðilegum hugtökum og kenningum á efnið.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kenningum afbrotafræðinnar
  • hugtökum greinarinnar
  • helstu frumkvöðlum greinarinnar


Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita félagsfræðilegu innsæi við umfjöllun um frávik og afbrot
  • gera grein fyrir og beita ólíkum kenningum í afbrotafræði
  • greina frá hvernig afbrot eru afstæð eftir menningu samfélaga
  • skilgreina og skýra helstu hugtök greinarinnar í töluðu og rituðu máli
  • velja fræðilegt sjónarhorn í tengslum við tiltekið viðfangsefni
  • gera grein fyrir helstu gerðum afbrota
  • vinna með ólíkar heimildir


Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • móta sér skoðun um ólík viðfangsefni afbrotafræðinnar
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og geti unnið í samvinnu við aðra
  • skilja helstu aðferðir afbrotafræðinnar og nýta sér kenningar hennar í töluðu og rituðu máli
  • beita gagnrýnni hugsun í fræðilegri og í almennri umræðu
  • miðla fræðilegum texta á fjölbreyttan og skilmerkilegan hátt
  • tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi


Nánari upplýsingar á námskrá.is