Skóladagatal og stokkatafla

Skóladagatal

Skóladagatal Menntaskólans við Sund inniheldur upplýsingar um upphaf og endi skólaársins. Skóladagatalið endurspeglar skipulag skólastarfsins og er sett í samræmi við ákvæði reglugerðar um starfstíma framhaldsskóla, nr. 260/2017. Einnig er þar að finna upplýsingar um upphaf kennslu, tímasetningu umsjónardaga og skiptingu í kennslu- og matsdaga. 

Skóladagatal Menntaskólans við Sund 2024-2025

Smellið á myndina til að sjá dagatalið í betri upplausn

Skóladagatöl fyrri ára

Stokkatafla

Kennsla í MS hefst klukkan 8:30 alla daga. Lang flestir 5 feininga áfangar eru kenndir þrisvar í viku. Morgunstokkur er 3 kennslustundir, miðjustokkur er tvær kennslustundir og svo er þriggja kennslustunda stokkur eftir hádegið, alls átta kennslustundir. Áfangar sem ekki eru í hefðbundnum 8 tíma stokkum eru F, G, H og J stokkarnir en þeir eru allir tvær kennslustundir á viku. I stokkur er ein kennslustund.

Síðast breytt 11.6.2024