Móttaka nýrra nemenda fimmtudaginn 24. ágúst

Móttaka nýrra nemenda við skólann verður í Holti, matsal skólans, fimmtudaginn 24. ágúst kl. 14:00. Nemendur á starfsbraut mæta kl. 13:30.

Strax að lokinni dagskrá verður nýnemaferð fyrir nýnema á fyrsta námsári í boði skólafélagsins. Nýnemadagskráin er tvískipt:

  1. Óvissuferð kl. 15-18 - klæðnaður eftir veðri.
  2. Nýnemavaka í MS kl. 20 (húsið opnar kl. 19:30). Á nýnemavöku verður stjórn skólafélagsins með leiki og skemmtidagskrá fyrir nýnema og eru öll hvött til að gista nóttina í íþróttasalnum. Starfsfólk skólans stendur vaktina um kvöldið og nóttina.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 28. ágúst og eru stundatöflur væntanlegar í Innu á næstu dögum.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur!