Áfanginn er ætlaður öllum nýnemum og er ætlast til þess að nemendur taki áfangann á fyrstu önn framhaldsskólans. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast skólaumhverfinu, því námi sem þar fer fram og leiðum sem geta hjálpað til við námið. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla, s.s.námsbrautir, nemendaumsjónar- og kennslukerfi, notkun bókasafns- og upplýsingamiðstöðvar og félagslíf skólans. Einnig verður fjallað um námsstíla og vinnubrögð í námi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- skólanum, kerfum hans, þjónustu og umhverfi.
- því námi og þeim námsmöguleikum sem í boði eru.
- árangursríkum námsaðferðum og miklvægi þess að setja sér markmið.
- góðum prófaundirbúningi og leiðum til að draga úr prófkvíða.
- því félagslífi sem í boði er.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera námsáætlun.
- nýta sér góð vinnubrögð, góða námstækni og setja sér raunhæf viðmið.
- skoða námframboð og námsleiðir innan skólans.
- nýta sér það félagslíf sem í boði er.
- nýta kerfi, þjónustu og aðstöðu skólans.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota árangursrík vinnubrögð í námi.
- velja sér leið í gegnum framhaldsskólakerfið og skipuleggja nám sitt.
- nýta þá þjónustu og aðstöðu sem skólinn býður upp á til að styðja við nám sitt og félagsleg samskipti.
Nánari upplýsingar á námskrá.is