ENSK3FM05 - Fagenska í fjölmiðlum og markaðsfræði

Unnið með sérhæfðan orðaforða í félagsvísindum á ensku. Notaðar greinar af ýmsum sviðum félagsvísinda. Einnig eru bókmenntir lesnar og vandlega skoðaðar út frá menningarlegu samhengi.
 
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mismunandi fagtextum í félagsvísindum
  • álitaefnum í félagsvísindum
  • tengslum rannsókna í félagsvísindum og mótun samfélaga
  • enskum orðasamböndum innan félagsvísinda
  • framsetningu ritaðs og talaðs máls, aðallega formlegs máls
  • framsetningu hugmynda í skáldskap er tengjast menningu enskumælandi þjóða
  • fagorðabókum og íðorðasöfnum
  • heimildaskráningu

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skilja vel texta í félagsvísindum
  • skilja vel talaða ensku um félagsvísindi
  • sklja tengsl rannsókna í félagsvísindum og mótun samfélaga
  • taka virkan þátt í samræðum um ýmis álitaefni félagsvísinda
  • skrifa ýmiss konar formlega texta samkvæmt enskum reglum og hefðum
  • greina viðhorf og tengsl kenninga félagsvísinda í skáldskap
  • lesa bókmenntalegan texta út frá menningarlegu samhengi
  • nota reglur um heimildaskráningu
  • nota fagorðabækur og íðorðasöfn við nám sitt

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um málefni félagsvísinda
  • nýta sér inntak rökræðna og erinda um félagsvísindi
  • átta sig á mismunandi notkun tungumálsins í töluðu máli og undirliggjandi viðhorfum og tilgangi þess sem talar
  • greina tengsl skáldskapar og félagsvísinda
  • gagnrýna á rökfastan hátt texta um félagsvísindi á hlutlægan hátt
  • tjá sig á skipulegan hátt um efni tengt félagsvísindum
  • nýta sér heimildir samkvæmt reglum um notkun heimilda
  • nýta sér fagorðabækur og íðorðasöfn við nám sitt á réttan hátt
  • skrifa formlega ritgerð með inngangi með efnisyrðingu, meginmáli og lokaorðum

Nánari upplýsingar á námskrá.is