ÍÞRÓ1XB01, ÍÞRÓ1YB01 og ÍÞRÓ1ZB01

Áfanginn er verklegur þar sem haldið verður áfram að fara yfir grunnþætti og markmiðasetningu einstakra greina. Leitast verður við að kynna nemendum helstu leikreglur einstakra greina ásamt því að fara yfir mikilvægi liðsheildar. Nemendur læra að átta sig á tengslum líkama og sálar og mikilvægi þeirra í daglegu lífi og fá einnig skilning á því hvernig streita, hugsanir og lífsstíll hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkamlega heilsu
  • Jákvæðum áhrifum sem hreyfing getur haft
  • forvarnargildi almennrar heilsuræktar

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • kunna helstu leikreglur mismunandi greina
  • nýta sér aðferðir til slökunar
  • þjálfa hreyfingu og virkni sem jákvæða upplifun
  • beita samvinnu sem stuðlar að tillitssemi og hvatningu

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér markmiðasetningu til að takast á við persónulegar áskoranir og leysa af hendi krefjandi verkefni dagslegs lífs
  • taka þátt í þjálfunaraðferðum  og leikjum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun
  • þekkja eigin styrkleika
  • geta stundað slökun