Upplýsingafundur fyrir foreldra nýnema

Við minnum á upplýsingafund fyrir foreldra / aðstandendur nýnema í Menntaskólanum við Sund miðvikudaginn 4. september kl. 20. Á fundinum verða kynnt helstu atriði sem fylgja því að eiga barn í framhaldsskóla, áherslur í náminu og þjónusta sem skólinn býður uppá. Hvetjum foreldra nýnema til að fjölmenna.  Hér er viðburður á Facebook.

Hér má finna glærur frá fundinum.