Viðureign MS og Tækniskólans í Morfís í kvöld 22. janúar

Lið Menntaskólans við Sund mætir Tækni­skólanum í Morfís, Mælsku og rökræðukeppni fram­halds­skól­anna, í kvöld föstu­daginn 22. janúar.

Umræðuefni kvöldsins er hafið og er MS að sjálfsögðu með 😉

Lið MS skipa þau Arnar Smári, Eydís Jansen, Salka Sigmarsdóttir og Víðir Ramdani.

Keppnin verður í beinu streymi og koma nánari upp­lýs­ingar um streymi á sam­fé­lagsmiðlasíður SMS þegar þær liggja fyrir.