Upphaf haustannar

Nú líður senn að upphafi kennslunnar hjá okkur í MS. Staðnám mun að óbreyttu hefjast þann 30. ágúst næstkomandi samkvæmt skóladagatali.

Föstudagurinn 27. ágúst er umsjónardagur og þann dag mæta nýnemar í skólann. Vegna smitvarna er viðbúið að skipta þurfi nýnemum í minni hópa. Það fyrirkomulag verður kynnt nánar þegar nær dregur.

Áætlað er að stundatöflur haustannar verði birtar þann 27. ágúst.

Við hvetjum nemendur til að undirbúa sig vel fyrir komandi önn og huga sérstaklega að tölvubúnaði. Eins og staðan er í dag verða nemendur að vera undir það búnir að sinna námi sínu með rafrænum hætti. Námsgagnalista er hægt að nálgast hér á heimasíðunni.