Styrkir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands til framhaldsskólanema

Í ár verður úthlutað í fimmtánda sinn styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands til framhaldsskólanema sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Frá upphafi hafa hátt í 400 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru að fjárhæð 300.000 kr. hver auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands. 

Að þessu sinni líkt og undanfarin ár verður einnig sérstök áhersla lögð á að styrkja þá nemendur sem sækja um kennaranámeða annað nám í menntavísindum og eins þá nemendur sem hafaíslensku sem annað mál.

Við val á styrkhöfum er tekið mið af:

  • framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi 
  • virkni í félagsstörfum
  • árangri nemenda á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum 
  • sérstökum framförum í námi eða góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna undir eftirfarandi slóð: http://sjodir.hi.is/node/365

Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands er til 5. júní nk. líkt og umsóknarfrestur um nám við skólann.