Stundatöflur vorannar tilbúnar

Stundatöflur vorannar fyrir nemendur á stúdentsbrautum eru nú tilbúnar í INNU. Einnig hefur verið opnað fyrir beiðnir um töflubreytingar og verður hægt að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 á morgun (mánudag). Upplýsingar um stundatöflur á starfsbraut hafa verið sendar til nemenda í tölvupósti. 

Í Fréttamolum sem bárust nemendum fyrir helgi er að finna leiðbeiningar um hvernig töflubreytingabeiðnir eru framkvæmdar í gegnum INNU.  Að vanda eru hópar þéttsetnir og því lítið svigrúm til töflubreytinga. Mikilvægt er að hafa í huga að ósk um töflubreytingar er eingöngu tekin til skoðunar ef nemandi:

  1. telur sig vera með ranga áfanga í töflu miðað við námslínu og val.
  2. er með færri en 5 áfanga í töflu og það tefur námslok á næstu önnum (gildir þó ekki um nemendur sem eru í námsframvinduúrræði).
  3. er í eða búin/ð/nn með fjarnám í sama áfanga og er í töflu nemenda. 

Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir hver þéttleikinn er í hverjum hópi fyrir sig en miðað er við að hópastærð í bóklegum áföngum fari ekki yfir 28 og í listgreinum ekki yfir 17. Rauðlitaðir hópar eru því fullbókaðir. Í töflunni er raðað eftir stokkum og geta nemendur sem þurfa að óska eftir töflubreytingum því nýtt sér hana til leiðsagnar.