Stundatöflur haustannar tilbúnar í Innu

Stundatöflur haustannar fyrir nemendur á stúdentsbrautum eru nú tilbúnar í INNU. Einnig hefur verið opnað fyrir beiðnir um töflubreytingar í Innu og verður hægt að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 mánudaginn 26. ágúst. Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum. Sjá skipulag áfanga á heimasíðunni.

Athugið: Nær allir nemendur á öðru ári eru allir með fjóra áfanga í töflu + íþróttir og telst það full tafla.

Leiðbeiningar um hvernig töflubreytingabeiðnir eru framkvæmdar má finna hér.

Að vanda eru hópar þéttsetnir og því lítið svigrúm til töflubreytinga. Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir hver staðan er í hverjum hópi fyrir sig en miðað er við að hópastærð í bóklegum áföngum fari ekki yfir 28 og í listgreinum ekki yfir 17. Appelsínugulir hópar eru fullbókaðir. Í grænum hópum er laust pláss. Í töflunni er raðað eftir stokkum og geta nemendur sem þurfa að óska eftir töflubreytingum því nýtt sér hana til leiðsagnar.