Staðkennsla fellur niður 7. febrúar

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að gefin hefur verið út rauð veðurviðvörun í nótt og til klukkan 8:30 í fyrramálið. Fólk hefur verið hvatt til þess að vera ekki á ferli á þessum tíma og búast má við ófærð í kjölfarið. Í MS fellur niður STAÐkennsla mánudaginn 7. febrúar en gert er ráð fyrir fjarkennslu á TEAMS eða verkefnum á Námsneti. Kennarar munu upplýsa sína nemendur um skipulagið í þeirra áföngum. Skólinn verður opinn.