Örfá laus pláss fyrir nemendur á 2. ári

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í Menntaskólanum við Sund á haustönn 2024. Aðeins verður tekið inn í örfá laus pláss á 2. námsári. Skólinn áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námslínum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum. Athugið að engir nýnemar (f. 2008) verða teknir inn þar sem fullt er á fyrsta námsár.

Opið er fyrir umsóknir til 18. ágúst 2024. Sótt er um í gegnum Menntagátt.

Upphafsdagur haustannar er mánudagurinn 26. ágúst.