Opið fyrir töflubreytingar á vorönn

Búið er að opna fyrir stundatöflur nemenda í INNU á vorönn. Opnað hefur verið fyrir óskir um töflubreytingar í Innu og er opið fyrir þær til kl. 14:00 mánudaginn 26. febrúar. Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 27. febrúar.

Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel þessar leiðbeiningar um töflubreytingar í Innu.

Á myndinni má sjá stöðuna í áföngum við opnun töflubreytinga, rauðir hópar eru orðnir fullir.