Neyðarstig almannavarna vegna kórónaveirunnar

Þar sem neyðarstigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna COVID-19 kórónaveirunnar vekur mennta- og menningarmálaráðuneyti athygli fræðsluaðila á upplýsingum í landsáætlun sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra þar sem fjallað er um skólahald, sjá bls. 70:

Á neyðarstigi: 

  • Skólar munu halda uppi starfsemi eins lengi og unnt er.
  • Markmið er að starfsmenn skóla haldi áfram störfum þó nemendur eða starfsfólk sé sent heim vegna sóttvarnaráðstafana.
  • Skipuleggja hlutverk kennara í fjarkennslu og heimanámi.
  • Skrá sérstaklega fjarvistir nemenda og starfsmanna vegna viðkomandi veikinda.
  • Hugað verði að því að nemendum í brotthvarfshættu bjóðist stuðningur námsráðgjafa þar sem því verður við komið.

Frá MS: Ávallt er fylgst með nýjustu upplýsingum vef landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is og tekið mið af þeim í öllum  ákvörðunum.