MS-dagurinn 2022

Laugardaginn 4. júní næstkomandi mun skólinn bjóða afmælisárgöngum eldri nemenda (útskriftarárgöngum 1982, 1992, 2002 og 2012) að koma í sinn gamla skóla og endurvekja gömul kynni. Skólinn hefur breyst mikið undanfarin ár og gefst gestum kostur á að skoða skólann með leiðsögn stjórnenda.  

Boðið verður upp á léttar veitingar og er það markmið okkar að eiga ánægjulega endurfundi með okkar eldri nemendum og kennurum. 

Húsið opnar klukkan 15.00 og er gert ráð fyrir því boðið standi til klukkan 17.00.