MS áfram í Gettu betur

Gettu betur lið Menntaskólans við Sund ásamt þjálfara. Frá vinstri: Emma Elísa Jónsdóttir, Sigurjón …
Gettu betur lið Menntaskólans við Sund ásamt þjálfara. Frá vinstri: Emma Elísa Jónsdóttir, Sigurjón Nói Ríkharðsson, Darri Þór Guðnason og Jónas Örn Helgason

Lið MS sigraði lið FVA eftir æsispennandi keppni í 2. umferð Gettu betur síðastliðinn föstudag. Með sigri tryggði MS sér sæti í 8 liða úrslitum sem fram fara í sjónvarpinu í febrúar. MS mætir næst Kvennaskólanum í sjónvarpssal þann 8. febrúar. Til hamingju Emma Elísa, Sigurjón Nói og Darri Þór!