Mötuneyti Menntaskólans við Sund

Mötuneyti skólans opnaði á fyrsta skóladegi, 18. ágúst og er með í boði hollan og góðan mat á mjög sanngjörnu verði.

Stök heit máltíð kostar 950 krónur en hægt er að kaupa 10 miða kort og þá er máltíðin á 900 krónur.  Einnig er hægt að kaupa í mötuneytinu holla drykki og kaffi, skyr, samlokur og fleira smálegt. Mötuneytið er opið frá opnun skóla að morgni fram til um klukkan 14:00.