Menntagátt opin fyrir umsóknir um skólavist fyrir vetrarönn 2020

Menntaskólinn við Sund hefur ákveðið að opna fyrir innritun fyrir vetrarönn 2020. Ljóst er að takmarkað svigrúm er í skólanum að þessu sinni til að bæta við nemendum og því munu að hámarki verða innritaðir fimm nemendur inn á vetrarönn 2020. Lokað verður fyrir umsóknir á miðnætti þann 8. nóvember 2020.  Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum Menntagátt.

Við röðun umsókna gilda eftirfarandi viðmið: 

  • Umsækjendur undir 18 ára aldri eru í forgangi.
  • Umsækjendur með eðlilega námsframvindu og nám sem fellur vel að námskrá MS eru í forgangi.
  • Sérstaklega er litið til skólasóknar og einkunna í kjarnagreinum (dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði).

 Nemendum annarra skóla sem enn hafa ekki lokið áföngum er ráðlagt að bíða fram í janúar og sækja um nám á vorönn 2021.

 Virðingarfyllst, stjórnendur MS