Matsdagar 18. og 19. september

15.9.2017: Nú eru framundan tveir matsdagar, mánudagurinn 18. og þriðjudagurinn 19. september 2017. Í fyrsta sinn eru matsdagar hjá öllum nemendum skólans og vill skólinn því árétta að matsdagar eru skóladagar þó ekki sé kennt eftir stundaskrá. Hér að neðan má finna tengil á dagskrá matsdaga þar sem fram koma helstu próf og verkefni sem kennarar hafa skipulagt. Þessir dagar er ætlaðir fyrir nemendur til að vinna sjálfstætt, klára verkefni og almennt vinna í haginn í náminu. Einnig eru þessir dagar ætlaðir fyrir kennara til að vinna að námsmati og skipuleggja kennsluna. Það er mjög mikilvægt fyrir skólastarfið að þessi dýrmæti tími sé nýttur vel.

Yfirlit yfir verkefni og sjúkrapróf á matsdögum liggur fyrir. Sjá hér