Kennsla í MS til loka haustannar 2020

Ákveðið hefur verið, vegna Covid 19 ástandsins, að hafa kennslu í íþróttum og bóklegum greinum með fjarkennslunsniði til loka haustannar. Síðasti kennsludagur á haustönn er föstudagurinn 6. nóvember en önninni lýkur með matsdögum í vikunni þar á eftir. Að óbreyttu verður kennsla í listgreinum með sama sniði og verið hefur. Ef það verða gerðar breytingar sem snúa að listgreinakennslu í MS verður sú ákvörðun tekin við lok þessarar viku þegar ný reglugerð um sóttvarnir verður birt.