Jöfnunarstyrkur 2022-2023

Opnað var fyrir umsóknir jöfnunarstyrks þann 1. september s.l. Þeir nemendur sem áætla að stunda nám allt námsársið eru hvattir til að sækja nú um allar annir.

Eingöngu er hægt að sækja um styrkinn með rafrænum skilríkjum a heimasíðu okkar www.menntasjodur.is eða www.island.is   

Ef sótt er um eftir 15. október n.k. fá nemendur 15% skerðingu á styrknum. 

Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum getur þú sent fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is.