Innritun eldri nemenda

Innritun eldri nemenda stendur til  kl. 23:59 7. júní. Umsækjendur undir lögaldri hafa forgang í ferlinu en einnig er litið til námsframvindu, ástundunar og einkunna við röðun umsókna. Fjöldi lausra plássa er takmarkaður og afmarkast af heimild skólans hvað varðar nemendafjölda í skólanum. Innritun fer eingöngu fram í gegnum menntagátt og verður öllum umsóknum eldri nemenda svarað skriflega þegar niðurstaða liggur fyrir.