Innritun á vorönn 2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í Menntaskólanum við Sund á vorönn 2023. Skólinn áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námslínum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum. Opið er fyrir umsóknir til og með 5. febrúar 2023. Sótt er um í gegnum Menntagátt.

Upphafsdagur vorannar er mánudagurinn 27. febrúar.