Innritun á vetrarönn 2019-2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á menntagáttinni fyrir vetrarönn 2019-2020 sem hefst þann 18. nóvember næstkomandi. Við viljum ítreka að þar sem MS er með þriggja anna kerfi verður ekki opnað fyrir umsóknir á vorönn 2020 (sem hefst 24.febrúar) fyrr en í janúar. Opið er fyrir umsóknir á fjórar námslínur til miðnættir þann 12. nóvember, frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans (https://www.msund.is/namid/namsbrautir).

Á þessari stundu er ómögulegt að segja til um fjölda lausra plássa á næstu önn en öllum umsækjendum verður svarað, eigi síðar en 19. nóvember næstkomandi.