Hagnýtar upplýsingar við upphaf skólaársins

Það styttist í upphaf haustannar 2024 og starfsfólk MS hlakkar til að taka á móti nemendum.

Hér eru helstu dagsetningar við upphaf skólaársins:

  • 19. ágúst: Móttaka nýnema kl. 10. Nemendur á starfsbraut mæta 9:30. Sjá nánar póst sem sendur var til nýnema og forsjárfólks 13. ágúst.
  • 20. ágúst: Upplýsingatækninámskeið fyrir nýnema á 1. námsári.
  • 23. ágúst: Kynningarfundur fyrir nýja nemendur á 2. og 3. námsári kl. 10. Sjá nánar póst sem sendur var 13. ágúst.
  • 23.-24. ágúst: Nýnemaferð fyrir nemendur á 1. námsári.
  • 26. ágúst: Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá. Áætlað er að stundatöflur haustannar verði birtar í Innu föstudaginn 23. ágúst.

Við minnum á gagnlegar upplýsingar hér á heimasíðunni eins og skóladagatal, skólareglur, námsgagnalista, lýsingu á einstökum áföngum og upplýsingar um uppbyggingu námsbrauta.