Grímuskylda í MS frá og með morgundeginum 21.9.2020

Vegna Covid 19 ástandsins hefur verið ákveðið að frá og með mánudeginum 21.9.2020 verður grímuskylda í MS. Grímuskyldan nær til allra nemenda í staðnámi og allra starfsmanna skólans.

Skólinn mun útvega grímur fyrir alla og í fyrramálið verða þær til staðar þegar fólk kemur til vinnu. Skólinn hvetur nemendur og starfsmenn að kynna sér rétta grímunotkun á covid.is.

Rektor.