Framboð til kosninga SMS- Nemendafélags MS

Kæru nemendur!

Á miðnætti í kvöld rennur út framboðsfrestur kosninga til stjórnar og nefnda SMS. Kosið verður þann 6. mars og verður nóg um að vera í skólanum í næstu viku. Lýðræðisvitund og virk þátttaka í samfélaginu eru mikilvæg gildi auk þess sem kröftugt og gefandi félagslíf fyrir alla nemendur er skólanum afar dýrmætt. Því viljum við hvetja ykkur, sem viljið láta gott af ykkur leiða, að bjóða ykkur fram til starfa á vegum nemendafélagsins. Sérstaklega hvetjum við stúlkur til að stíga fram og láta til sín taka í félagslífinu.

Bestu kveðjur

Stjórnendur MS