Jólakveðja

Menntaskólinn við Sund óskar öllum nemendum, starfsfólki og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samstarfið á árinu. Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 21. desember 2023 til og með 3. janúar 2024. Skrifstofan opnar aftur 4. janúar kl. 8:00 en þá hefst líka kennsla samkvæmt stundaskrá.

Njótið hátíðanna!