Brautskráning stúdenta að lokinni haustönn 2020

Brautskráning stúdenta fór fram frá Menntaskólanum við Sund laugardaginn 28. nóvember og voru 18 nemendur brautskráðir að þessu sinni, 9 stúlkur og 9 piltar. Vegna covid 19 var ekki hægt að bjóða gestum að vera viðstaddir en einungis væntanlegir nýstúdentar og þeir starfsmenn sem komu að brautskráningunni voru viðstaddir. Athöfninni var hins vegar streymt og má skoða upptöku af henni á youtube. Slóðin er: Brautskráning Menntaskólans við Sund - YouTube