Alþjóðlegur dagur einhverfu

Alþjóðlegur dagur einhverfu er haldinn hátíðlegur 2. apríl ár hvert. Við fögnum fjölbreytileikanum og viljum búa í samfélagi sem gefur öllum kost á að skína.

Í tilefni dagsins, verða Einhverfusamtökin með opið hús að Háaleitisbraut 13, 4. hæð, frá klukkan 20 til 22.
-Laufey I. Gunnarsdóttir einhverfuráðgjafi mun fjalla um listsköpun kvenna á einhverfurófi.
-Opnuð verður sýning á vatnslitamyndum Fríðu Adriönu Martins og mun hún lesa upp úr fyrstu bók sinni þar sem hún breytir upplifun sinni af einhverfu í litríkan ævintýraheim.
-Einhverfusamtökin munu veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu einhverfra.
-Tónlistaratriði - Fabúla.
-Veitingar og spjall.


Gestir eru velkomnir.