Orkudrykkir, tóbak og veip

Forvarnarfulltrúar framhaldsskólanna hafa tekið eftirfarandi fræðsluefni saman vegna orkudrykkja, tóbaks og veips

Orkudrykkir

Mikil aukning hefur orðið á neyslu koffíndrykkja meðal framhaldsskólanema.

Árið 2016 voru 22% framhaldsskólanema sem drukku daglega eða oftar orkudrykk en árið 2018 var talan komin í 55%. https://kjarninn.is/frettir/2019-12-04-neysla-stulkna-framhaldsskolastigi-orkudrykkjum-fjorfaldast/

Árið 2019 jókst hagnaður heildsölunnar Core ehf sem selur vinsælasta koffíndrykkinn um 740% á tveimur árum sem gefur okkur vísbendingar um neyslan hafi ekki minnkað síðan 2018. https://www.vb.is/frettir/aevintyralegur-voxtur-heildsolu-nocco/157131/

Á heimasíðu Embættis landlæknis er tekið fram að hámarksneysla koffíns á dag sé 2,5 mg koffín á hvert kíló líkamsþyngdar.

Hámarksneysla koffíns á dag fyrir mismunandi hópa

  • Fullorðnir: 400 mg
  • Barnshafandi konur: 200 mg
  • Börn og unglingar: 2,5 mg/kg

Dæmi um magn koffíns í drykkjum og súkkulaði

  • Orkudrykkur (330 ml): 100 - 180 mg
  • Kaffibolli (200 ml): 100 mg
  • Kóladrykkur (500 ml): 65 mg
  • Svart te (200 ml): 35 mg
  • Dökkt súkkulaði (50 g): 33 mg
  • Kakódrykkur (250 ml ferna): 4,5 mg

https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item38403/Upplysingar-um-orkudrykki

Veip

Rafrettureykingar náðu til ungmenna mjög hratt en nýjustu rannsóknir leiða í ljós að fjórir af hverjum tíu hafa einhvern tíma prófað að ,,veipa“. https://www.mbl.is/born/frettir/2018/05/21/veip_getur_leitt_til_reykinga/

Í upphafi voru þessar rafrettur stærri og gáfu frá sér mikinn reyk og sterka lykt. En í dag eru þessi verkfæri mjög lítil og líkjast meira minniskubbi eða yfirstrikunarpenna og gefa hvorki frá sér sýnilegan reyk né mikla lykt.

Lyft munntóbak

Lyft eru nikótínpúðar sem er ný tegund á markaðnum og áttu að aðstoða fólk við að draga úr eða hætta tóbaksneyslu. Þessir púðar innihalda nikótín og bragðefni en eru án tóbaks. Púðarnir eru mjög litlir sem gerir það að verkum að það er erfiðara að taka eftir því þegar einstaklingur er með púða í munnvikinu. Þessi nýja vara fellur ekki undir reglugerðir um bann við sölu á munntóbaki þar sem varan er tóbakslaus.

Allt eru þetta vinsælar vörur og allar innihalda efni sem hafa örvandi áhrif á unglinginn og eru honum algjörlega óþörf!

Síðast uppfært: 15.01.2020