Erasmus+ verkefni 2018 - 2019

Starfsþróun til að byggja upp námskraft nemenda

Professional Development for Building Student Learning Power

Alls tóku 19 starfsmenn þátt í sjö ferðum erlendis sem voru styrktar af Erasmus+ á skólaárinu 2018-2019. Þetta voru tveggja til sjö daga ferðir á ráðstefnur og starfsspeglun í skólum í fimm löndum í Evrópu.

Kennari í sögu fór á ráðstefnu sagnfræðinga í Amsterdam í Hollandi í September 2018 “Cultural Mobilization: Cultural consciousness-raising and national movements in Europe and the world” á vegum SPIN (Study Platform on Interlocking Nationalism).

  • Clarence Glad, sögukennari

Starfsfólk á þjónustusviði á skrifstofu fór á námskeiðið „Soft Skills for Teachers and Education Staff“ í Bologna á Ítalíu í október 2018.

  • Dögg Árnadóttir, skrifstofustjóri
  • Hjördís Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi á skrifstofu

Kennarar í starfendarannsóknum sóttu CARN (Collaborative Action Reasearch Network) Voicing and Valuing: Daring and Doing, alþjóðlega ráðstefnu um starfendarannsóknir í Manchester á Englandi í október 2018

  • Hjördís Þorgeirsdóttir, félagsfræðikennari
  • Jóna Guðbjörg Torfadóttir, fagstjóri í íslensku (ferðin styrkt að hluta til)
  • Þorbjörn Guðjónsson, efnafræðikennari

Fagstjóri í dönsku fór í starfsspeglun í Gefion Gymnasium í Kaupmannahöfn í Danmörku í nóvember 2018.

  • Ósa Knútsdóttir, fagstjóri tungumála

Kennslustjóri, tveir fagstjórar og tveir kennarar fóru á ráðstefnu um Building Learning Power með Guy Claxton undir yfirskriftinni The Learning Power Approach og skólaheimsókn í Isaac Newton Academy sem hefur innleitt BLP á árangsursríkan hátt í London á Englandi í desember 2018. Skólinn fékk styrk fyrir tvö þeirra frá SEF.

  • Arnoddur Elíasson, enskukennari
  • Guðrún Benedikta Elíasdóttir, fagstjóri listgreina (styrkur frá SEF)
  • Ileana Manulescu, fagstjóri stærðfræði
  • Leifur Ingi Vilmundarson, kennslustjóri
  • Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir, fagstjóri ensku (styrkur frá SEF)

Konrektor og kennarar í þróunarhópi um leiðsagnarmat fóru á ráðstefnu um leiðsagnarmat, Visible Learning undir yfirskriftinni Advanced Learning: Making ‘What Works’ Actually Work í Edinborg í Skotlandi í mars 2019

  • Elín Jóhannsdóttir, stærðfræðikennari
  • Hafsteinn Óskarsson, hagfræði- og landafræðikennari og tölvuumsjón
  • Helga Sigríður Þórsdóttir, konrektor
  • Hjördís Alda Hreiðarsdóttir, íslenskukennari

Kennari í félagsfræði fór í starfsspeglun til Edinborgar í Skotlandi í mars 2019.

  • Þórunn Steindórsdóttir, félagsfræðikennari

Kennarar í sögu fóru á ráðstefnu EUROCLIO, Bringing History to life í Gdansk í Póllandi í apríl 2019.

  • Brynhildur Einarsdóttir, kennari í sögu og lýðræðisvitund
  • Lóa Steinunn Kristjánsdóttir, fagstjóri félagsgreina