Fréttir

Kennsla fellur niður föstudaginn 1. mars vegna starfsþróunardags framhaldsskólanna

Kennsla fellur niður í skólanum föstudaginn 1. mars vegna Starfsþróunardags framhaldsskólanna þar sem starfsfólk MS hittir starfsfólk annarra framhaldsskóla og lærir hvert af öðru. Nemendur eru því í fríi þennan dag.

Opið fyrir töflubreytingar á vorönn

Búið er að opna fyrir stundatöflur nemenda í Innu á vorönn. Opnað hefur verið fyrir óskir um töflubreytingar í Innu og er opið fyrir þær til kl. 14:00 mánudaginn 26. febrúar. Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 27. febrúar. Lesa meira...

Námsmatssýning fimmtudaginn 22. febrúar

Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að sjá námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum TEAMS. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel. Lesa meira...

Dagskrá matsdaga 19. og 20. febrúar

Hér má finna dagskrá matsdaga 19.-20. febrúar. Nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta í sín próf/verkefni á réttum stað og stund. Lesa meira...

Kynningar fyrir nemendur í 10. bekk

Skráning er hafin á kynningar fyrir nemendur í 10. bekk á námi og félagslífi í Menntaskólanum við Sund. Á kynningunum verður námsframboð og skipulag námsins kynnt. Nemendur úr stjórn SMS kynna félagslífið. Lesa meira...

MS mætir Kvennó í sjónvarpinu annað kvöld

MS mætir Kvennó í 8. liða úrslitum Gettu betur á RÚV kl. 20:05 annað kvöld. Við fáum takmörkuð sæti en ætlum að sjálfsögðu að fylla þau öll og styðja okkar fólk.

Baulan 2024

Söngvakeppnin Baulan fór fram í Gamla bíó fimmtudaginn 1. febrúar. Þar stigu á stokk fjöldi hæfileikaríkra MS-inga sem létu ljós sitt skína. Sigurvegari kvöldsins var Elísabet Arna Vésteinsdóttir sem söng lagið Unfaithful með Rihanna. Í öðru sæti var Dagbjartur Elí Kristjánsson sem söng It's my life með Cezar og vinsælasta atriðið var Another love með Tom Odell í flutningi þeirra Arons Vals Gunnlaugssonar og Marons Birnis Reynissonar.