Fréttir

Brunaæfing fór fram í MS í dag

Í dag 31. október var haldin æfing á rýmingu skólans. Æfingin var haldin af öryggisnefnd skólans og undirbúin með því að tilkynna hana fyrirfram og hvetja starfsfólk til þess að kynna sér hlutverk sitt ef til rýmingar kæmi. Nemendur fengu upplýsingar um rýminguna samdægurs með tölvupósti ásamt leiðbeiningum um hvernig ætti að bera sig að.

Aukin þjónusta við nemendur sem þurfa lesin próf

Nemendaþjónusta skólans vinnur nú að því að auka þjónustu við nemendur sem þurfa upplestur í prófum. Markmiðið er að allir nemendur sem það þurfa fái lesin próf í öllum námsgreinum. Tækninni fleytir hratt áfram í þessum efnum og við munum notast við tæknilausnir til að geta mætt þörfum nemenda á einfaldari hátt en áður.

Dagskrá matsdaga 26.-27. október

Hér má sjá dagskrá matsdaga 26.-27. október. Nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta í sín próf/verkefni á réttum stað og stund.

Engin innritun á vetrarönn 2023-2024

Engir nýir nemendur verða teknir inn í skólann á vetrarönn sem hefst í nóvember 2023.

Kvennaverkfall 24. október 2023

Þriðjudaginn 24. október verður kvennaverkfall þar sem konur og kvár eru hvött til að leggja niður störf og knýja þannig á um fullt jafnrétti í íslensku samfélagi. Menntaskólinn við Sund styður að sjálfsögðu mótmælin og hvetur starfsfólk og nemendur af öllum kynjum til að taka þátt í samstöðufundi á Arnarhóli kl. 14. Viðbúið er að einhverjir tímar falli niður og nemendur þurfa að fylgjast vel með tilkynningum frá kennurum í INNU. Húsnæði skólans verður opið og gert er ráð fyrir því að karlmenn mæti til starfa og sinni þeim eftir bestu getu. Það má gera ráð fyrir því að mötuneyti verði lokað, ekki svarað í síma og að skólinn verði ekki þrifinn enda konur sem sinna þessum störfum. Nemendur sem taka þátt í verkfallinu þennan dag fá ekki fjarvist.

Starfendarannsóknir í MS tilnefndar til Íslensku menntaverðlaunanna

Það gleður okkur að tilkynna að Menntaskólinn við Sund er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framúrskarandi þróunarverkefni. Skólinn hlýtur tilnefninguna fyrir starfendarannsóknir, sem hafa verið stundaðar við skólann síðan 2005.

Kennsla fellur niður fimmtudaginn 5. október 2023

Fimmtudaginn 5. október fellur öll kennsla niður í skólanum og skólanum verður lokað þann dag, vegna starfsdags starfsfólks skólans. Kennt verður samkvæmt stundaskrá föstudaginn 6. október.