MENF2KK05 – Karlar í listum

Í þessum áfanga verður leitast við að skoða þá karla sem skarað hafa fram úr, bæði hér á landi og erlendis. Kynnt verða til sögu stærstu nöfnin í menningar- og listasögu sem og helstu straumar og stefnur í listum. Í áfanganum er krafist mjög sjálfstæðra vinnubragða og mikil áhersla er lögð á notkun nútímatækni.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • völdum þáttum í menningarsögu
  • mismunandi straumum og stefnum í listum
  • listamönnum sem hafa markað djúp spor í menningarsögu Vesturlanda
  • vel völdum listaverkum

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina ólíka strauma og stefnur í listum
  • draga eigin ályktanir af menningarlegum gildum og viðmiðum
  • vera þátttakandi í menningarlífi og gera sér grein fyrir því hvað menningarstarf getur verið þroskandi fyrir einstaklinginn og veitt honum mikla lífsfyllingu
  • endursegja og túlka upplifun sína á listviðburðum og hvers kyns gagnrýni

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hafa færni í að greina það sem stendur upp úr í menningarsögu Vesturlanda
  • geta sett þekkingu sína í menningarsögu og listum í fræðilegt samhengi og miðlað henni áfram í ræðu og riti
  • öðlast hæfni í að bera skynbragð á list