Frumsýning á Grease í Gamla bíó í kvöld

Leikfélagið Thalía hefur staðið í ströngu við undirbúning og æfingar á söngleiknum Grease síðustu vikur og mánuði þar sem fjöldinn allur af nemendum MS stígur á svið eða vinnur hörðum höndum bakvið tjöldin. Vel heppnuð forsýning fór fram í gær fyrir fullum sal. Frumsýning er í kvöld, fimmtudaginn 18. apríl kl. 20:00 í Gamla bíó.

Næstu sýningar verða

  • sunnudaginn 21. apríl kl. 15
  • sunnudaginn 21. apríl kl. 20
  • mánudaginn 22. apríl kl. 20
  • þriðjudaginn 23. apríl kl. 20

 

Kaupa miða hér!