Fjarnám í MS í dag og á morgun

Vegna Covid 19 smits hefur verið ákveðið að vera með fjarnám í dag og á morgun. Upplýsingar um framvindu  í næstu viku verða sendar nemendum og forráðamönnum um leið og smitrakninarteymið hefur lokið sinni vinnu. Á morgun, föstudaginn 25.9.2020 verður því fjarnám í MS í öllum stokkum samkvæmt stundatöflu hvers og eins. Skólinn hvetur nemendur sem og starfsfólk að kynna sér vel leiðbeiningar um varnir gegn smiti á vefnum covid.is. Kveðja, rektor.