Opið hús 29. mars 2023
Gerist 29.03.2023
Miðvikudaginn 29. mars kl. 16.00- 18.00 verður OPIÐ HÚS í MS.
Við bjóðum nemendur 10. bekkjar og forsjárfólk þeirra hjartanlega velkomið.
Gestir geta kynnt sér námsframboð og námsfyrirkomulag skólans, skoðað húsakynni og kynnt sér félagslífið. Nemendur og starfsfólk skólans verða á staðnum til að svara spurningum og leiða gesti um húsið.